Vinna…vinna…vinna
6. ágúst 2008 — figuahjæja þá hefst leitin að nýrri og betri vinnu,byrjaði ekki vel þar sem ég gugnaði á að fara í atvinnuviðtal útaf starfi á olís kjalarnesi,hefði verið flott sko,stutt frá akranesi og örugglega ágætlega borgað en ég er víst ekki mikið fyrir samskipti þannig að ég verð að leita að einhverju öðru =/
hringdi útaf starfi í stálsmiðju,kallinn sem ég talaði við var upptekinn og bað mig um að emaila sér helstu upplýsingar um mig og hvar ég hefði unnið áður,ég gerði það og nú er bara að bíða og sjá hvað skeður.
Bjarni heigull kveður =/